Skólasetning 24. ágúst
Heil og sæl kæru nemendur og foreldrar og gleðilegt nýtt skólaár.
Skólasetning og fyrsti skóladagur á 67. starfsári Laugalækjarskóla verður mánudaginn 24. ágúst sem hér segir:
- 7. bekkur og foreldrar mæta kl. 9:00 á sal skólans.
- 8. bekkir og foreldrar mæta kl. 9:45 á sal skólans.
- 9. bekkir og foreldrar mæta kl. 10:15 á sal skólans.
- 10. bekkir og foreldrar mæta kl. 11:00 á sal skólans.
Eftir stutta skólasetningu á sal halda nemendur og foreldrar upp í stofur umsjónarkennara. Eftir stuttan kynningarfund hjá umsjónarkennara halda foreldrar á braut og fyrsti skóladagurinn heldur áfram hjá nemendum. Allir nemendur fá hádegismat og einhver námsgögn þennan dag en dagskrá er samt heldur í léttari kantinum.
Sérstakir kynningarfundir fyrir foreldra í 7. bekk verða á sal skólans miðvikudaginn 19. ágúst kl. 16:00 og fimmtudagsmorguninn 20. ágúst kl. 9:00. Þar segjum við frá skólastarfinu og helstu breytingum sem bæði börn og foreldrar finna við skólaskiptin. Einnig verður gefið tækifæri til að spyrja og spjalla. Kaffi og kex verður í boði. Það er nóg að mæta á annan hvorn fundinn.
Miklar viðgerðir standa yfir á húsnæði skólans, sem er sannarlega þakkarvert en krefur okkur öll um sveigjanleika, þolinmæði og tillitsemi. Þetta mun reyna eitthvað á nemendur og umtalsvert á starfsfólk skólans fyrstu vikurnar. Viðgerðir standa t.d. yfir í 7 kennslustofum og öllu skrifstofurými - vonandi verðum við komin með flestar kennslustofurnar í notkun fyrir skólabyrjun.
Í sumar var bílastæði skólans nýtt til geyma alls kyns ferðavagna, sem er bæði sjálfsagt og velkomið. Núna þurfum við þó að losna við þessa vagna sem allra fyrst því hér eru um 60-80 manns að störfum daglega í þessari viku. Talsverð hætta er á að ferðahýsi sem hverfa ekki fljótlega verði nýtt sem skrifstofurými eða kennslustofur í vetur ;-)
Með skólakveðju frá öllu starfsfólki skólans,
Jón Páll, Sólveig, Eydís og Selma.