Frábær árangur Laugalækjarskóla í stærðfræðikeppni MR
Þann 10. mars fengu grunnskólanemendur tækifæri til að taka þátt í stærðfræðikeppni á vegum Menntaskólans í Reykjavík (MR). Nemendur í Laugalækjarskóla tóku þátt með afar góðum árangri.
Verðlaunaathöfn keppninnar fór fram síðastliðinn sunnudag, þar sem Laugalækjarskóli átti tvo fulltrúa meðal tíu efstu keppenda. Halldór Finnsson, nemandi í 9. bekk, náði framúrskarandi árangri og hafnaði í 3. sæti. Þá lenti Unnur H. Óskarsdóttir, nemandi í 8. bekk, í 6.–7. sæti.
Skólinn óskar þeim báðum innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.